Sunnuhvoll
Að Velja Kærleikann - Samskipti í nýju ljósi - Prentútgáfa
Að Velja Kærleikann - Samskipti í nýju ljósi - Prentútgáfa
Couldn't load pickup availability
Að Velja Kærleikann - Samskipti í nýju ljósi eftir Edward E. Ford
Höfundurinn er sálfræðingur og hjónaráðgjafi og segir sögur margra ráðþega til að útskýra mannlega hegðun og samskipti fólks. Hann styður sig við sálfræðikenningu frá William T. Powers og samtalsaðferðina Reality Theraphy eftir William Glasser. Þetta er hið nýja ljós sem nefnt er í titlinum og kemur fram í þakkarávarpi höfundar.
Bókin er fróðleg lesning og getur nýst við að skilja betur sjálfan sig og aðra. Hún styður við uppbyggingarstefnu þá sem kennd er við Diane Gossen og hefur verið hagnýtt af kennurum í íslenska skólakerfinu síðan um aldamót.
Félagið Uppbygging sjálfsaga leiðir þá vinnu að kynna uppbyggingarstefnuna fyrir skólasamfélaginu og almenningi og er það von útgefanda að þessi bók leggist á sömu sveif.
Share
